föstudagur, 28. janúar 2011

 

Árið 2011 í BJARMANUM

Gleðilegt árið kæru þið öll - það er með birtu, gleði,  krafti og kærleika sem Bjarminn hið nærri 15 ára hug- og mannræktarfélag heldur til starfa 2011 ! 
Starfsárið hófst 26. janúar s.l. með skyggnilýsingu Guðmundar Inga.
Ýmislegt spennandi er á döfinni hjá Bjarmanum:
OPIÐ HÚS verður 3ja þriðjudag hvers mánaðar: 15. febrúar - 15. mars og 19. apríl. Opnu húsin verða svo auglýst nánar bæði hjá Samkaupum og á heimsíðunni.
Frí heilun er alla laugardaga milli klukkan 10 og 12. Heilun hefur hjálpað ótrúlega þeim mörgu sem hafa notfært sér hana, fært frið og veitt vellíðan.
Í BJARMANUM eru starfandi bænahringir, en þar kemur fólk saman einu sinni í viku og biður. Máttur bænarinnar margfaldast þegar margir biðja fyrir því sama á sama tíma.
Sjáumst í BJARMANUM og látum okkur líða vel.
 
Gullkorn:
Hvað er það sem engri annarri lifandi veru er fært að gera nema manninum ?
Að brosa. Guð gaf manninum þá einstöku gjöf að geta brosað.





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?