sunnudagur, 30. janúar 2011

 

Húrra, ánægjulegt

Í upphafi þessa nýja árs sendi stjórn Bjarmans frá sér upplýsandi dreifibréf, hæfilega stutt en þó nægilega langt til að koma því helsta á framfæri í starfi félagsins sem hefur hug - og mannræktarsjónarmið að leiðarljósi.  Árangurinn lét ekki eftir sér bíða, því strax á fyrsta opna húsinu þar sem Guðmundur Ingi bauð upp á skyggnilýsingar, fylltist Bjarminn af fróðleiksfúsu fólki, um og yfir fjörutíu manns, alveg dásamlega gaman.
Það sama gerðist í gær, heilmikið af nýju fólki mætti til að kynna sér og njóta laugardagsheilunarstundarinnar í Bjarmanum.
Sem sagt upphaf ársins lofar góðum, spennandi tímum hjá Bjarmanum.
 
"Þegar Guð er með í öllu tekur lífið á sig nýja vídd.
Það er eins og að stíga inn í nýjan heim
þar sem jafnvel venjulegir hlutir verða óvenjulegir".





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?