Ásgeir Eiríksson, Klettum, Gnúpverjahreppi verður gestur Bjarmans í opna húsinu á þriðjudagskvöld. Ásgeir hefur nánast alla sína ævi haft ólýsanlega þörf og löngun til að skilja ljósið og sannleikann. Í opna húsinu mun Ásgeir ræða um "Sjálfshjálp". Ásgeir segir sjálfur á heimasíðu sinni " Ljósið í myrkinu" að hann hafi stundað allskonar yogaskóla og verið hjá ýmsum andlegum leiðbeinendum. Nú finnst honum tími kominn til að deila með öðrum því hann hefur reynt að tileinka sér sjálfur. Ásgeir vill gjarnan hjálpa fólki til að kveikja ljós í huga og finna gleðina, þá litlu, ljúfu leynifjöður sem vegur þungt í daglega lífinu okkar.
"Opið hús" í Bjarmanum þriðjudagskvöldið 15. febrúar - húsið opnar klukkan 19.30 -
umræðuefnið: SJÁLFSHJÁLP -
aðgangseyrir kr. 1000.
Verið innilega velkomin !
Bjarminn, hug- og mannræktarfélag birti #
11:47