Það er ýmislegt fróðlegt og uppbyggilegt í andlegum málum sem Bjarminn býður upp á :
Einkatímar :
Guðmundur Ingi miðill og transheilun
Anna Carla spámiðill
Bryndís og Hjördís - heilun
Tímapantanir og upplýsingar hjá Hjördísi í síma 693-7759
"Opið hús" 3ja þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann - næst 15. mars klukkan 20.00:
Gestur í opnu húsi verður Dr. Björg Bjarnadóttir "draumakona" sem mun fjalla um drauma, draumatákn og hvernig draumar geta talað við okkur í daglega lífinu, ef við erum "vel vakandi" fyrir þeim.
"Heilun" alla laugardaga milli klukkan 10 og 12 - heilunin er ókeypis. Endilega kíkið í heimsókn og kynnið ykkur heilunarstarfið.
Bænahringir:
Nokkrir bænahringir eru starfandi hjá Bjarmanum. Þar kemur fólk saman einu sinni í viku og biður. Við trúum því að bænin sé öflug og margfaldist ef margir biðja fyrir því sama og sama tíma.
Ef þú ert áhugasöm/samur um andleg mál eða ef þú vilt koma fyrirbæn á framfæri - komdu í heimsókn á laugardagsmorgnum - eða hringdu í eitthvert eftirfarandi símanúmera : 862 - 1470 866 - 7239 693 - 7759
Heimasíða Bjarmans er: www;bjarminn.is
Bjarminn, hug- og mannræktarfélag birti #
09:12