Dreymir þig mikið ? Ertu að spá í þýðingu draumanna þinna ? Tákn þeirra og merkingar !
Dr. Björg Bjarnadóttir sálfræðingur og áhugakona um drauma og allt sem þeim fylgir verður með erindi
í "OPNU HÚSI" Bjarmans næsta þriðjudagskvöld 15. mars klukkan 20.00.
Björg hefur í mörg undanfarin ár skráð drauma fólks og barna, haldið draumasýningar,
flutt erindi um drauma bæði hér heima og víða um heim.
Björg hefur skrifað bók um drauma og síðast en ekki síst rekur Björg draumasetrið Skuggsjá á Akureyri.
Húsið opnar klukkarn 19.30 á þriðjudagskvöld í húsnæði Bjarmans
- aðgangseyrir kr. 1000.00.
Höfum draumamætingu - það verður örugglega áhugavert og gaman með
Björgu Bjarnadóttur og draumunum okkar.
Bjarminn, hug- og mannræktarfélag birti #
11:06