fimmtudagur, 20. október 2011

 

Góð hugstormun

Góður og gagnlegur S.O.S. fundur var haldinn í Bjarmanum í gærkvöldi. 
Fínustu hugmyndir litu dagsins ljós.  
Sumar sem munu birtast á væntanlegu "viðburðadagatali".
Aðrar koma til framkvæmda strax eins og heilun á fimmtudögum. 
Heilunin á laugardögum hefur alltaf verið  vinsæl og gefandi.  
En nú hefur verið ákveðið að bjóða heilun einnig á fimmtudögum.  
Í fyrsta sinn fimmtudaginn 27. október milli klukkan 16.30 til 18.30. 
Laugardagsheilunin verður áfram á sínum stað, kl. 10 - 12 !
Verið innilega velkomin í Bjarmann ! 
Munum endilega eftir "EPLINU" góða - sem er kaffisjóðurinn okkar
og ein af undirstöðum þess að reka starfssemina.
 
ATHUGIÐ:
Bjarminn hefur ákveðið að vera
með fréttaflutning á "FACEBOOK".
Bjarmafélagi okkar Ása Björg Valgeirsdóttir
mun undirbúa og stýra þeirri síðu.
 
GULLKORN:
Veittu kærleika, innblástur, trú og hvatningu
í líf þeirra sem þú umgengst.
 





<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?