Kæru vinir,
Við óskum ykkur gæfu og gengis á nýju ári.
Nú er starf Bjarmans hafið á vorönn og eru fastir liðir starfsins komnir af stað.
Heilun verður á sínum stað á fimmtudögum kl. 16:30-18 og á laugardögum kl. 10-12.
Heilun laugardaginn 21. janúar fellur þó niður vegna námskeiðishalds.
Guðmundur Ingi hefur staðið fyrir námskeiði í næmni og heilun undanfarin ár og næsta námskeið verður haldið helgina 20. - 22. janúar. Enn er pláss fyrir áhugasama og því er um að gera að senda okkur línu ef þið hafið áhuga.
Námskeiðisgjald er 4.500 kr. og er innifalið í verði léttur hádegisverður á laugardegi og kaffi.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á bjarminn(hjá)gmail.com
Við minnum á að tekið er við bænabeiðnum á bjarminn(hjá)gmail.com
Gullkorn:
Þerraðu kinnar þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.
Bjarminn, hug- og mannræktarfélag birti #
17:57