laugardagur, 25. febrúar 2012

 

Spennandi vindar vorsins

Sælir kæru vinir,

Nú hefur dagskrá Bjarmans fyrir vorið 2012 verið borin út í öll hús í Dalvíkurbyggð. Það er skemmtilegt vor í vændum.

Opnu húsin færast yfir á laugardaga og vonum við að Dalvíkingar og nærsveitamenn taki vel í þessa nýbreytni. Ein undantekning er þó þegar Björn málari heimsækir okkur fimmtudaginn 8. mars.

Fastir liðir eru á sínum stöðum.
Heilun er í boði á laugardögum kl. 10-12 og á fimmtudögum kl. 16:30-18.
Heilunin hefur verið sívinsæl og sífellt fleiri sem koma við og finna á eigin skinni hvernig heilun getur bætt heilsuna, bæði andlega og líkamlega. Við hvetjum alla til að kíkja til okkar og kynna sér heilun og starfið í Bjarmanum og eru áhugasamir ávallt velkomnir í kaffi og spjall.

Heilun er frí, en fyrir þá sem eru aflögufærir þá er 300 kr. framlag í kaffisjóðinn vel þegið.

Boðið verður upp á fjögur opin hús fram á vorið:

Laugardag 25. febrúar kl. 12-16, Opið hús, boðið verður upp á miðlun og spáð fyrir fólki.

Fimmtudag 8. mars kl. 20-22, Opið hús Björn Jónsson (Björn málari) kemur og kynnir 'sína menn'. Björn hefur ávallt verið mjög vinsæll og hafa færri komist að en hafa viljað á opin kvöld hjá honum.

Laugardag 24. mars kl. 12-15, Opið hús, boðið verður upp á miðlun og spáð fyrir fólki.

Laugardag 28. apríl kl. 12-16, Opið hús, skyggnilýsingar með Guðmundi Inga Jónatanssyni. Guðmundur Ingi hefur starfað með Bjarmanum frá stofnun hans.

Guðmundur Ingi býður einnig upp á einkatíma og transtíma eftir nánara samkomulagi. Í transtímum er aðilum hleypt í gegn. Þar eru gestir 4-6 og fundir taka um 2 klst. Nánari upplýsingar í síma 862 1470.


Allt starf Bjarmans er byggt á sjálfboðavinnu og ómögulegt væri að reka félag eins og Bjarmann án þess góða fólks sem gefur af tíma sínum og kröftum til að viðhalda starfinu. En margar hendur vinna létt verk og við leitum að áhugasömu fólki til að starfa með félaginu. Ef þú hefur áhuga endilega kíktu í kaffi eða sendu okkur línu á bjarminn@gmail.com


Guðmundur Ingi hefur staðið fyrir næmni og heilunarnámskeiðum undanfarin ár. Eitt námskeið fór fram núna í janúar og mun annað námskeið verða haldið fyrir sumarið ef þáttaka verður næg. Sendi tölvupóst á bjarminn@gmail.com eða skráið ykkur á listann í Bjarmanum.

Megi vorið taka ykkur fagnandi og hækkandi sól verma hjarta ykkar.

Vorvísa

Hve bjart er veður,
og blómið glatt er morgundöggin seður.
Ó græna lífsins land!
Ó lífsins Grænaland, ó lands míns gróður,
leyf mér að elska þig og vera góður.

Hve margt sem gleður.
Í gljúpri lækjarseyru smáfugl veður.
Ó dýra lífsins land!
Ó lífsins Dýraland, ó land míns bróður,
hvers lítils fugls, og draumur vorrar móður.

Halldór Laxness






<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?